Hörpugull
Uppskrift | HEIÐA húfan
Uppskrift | HEIÐA húfan
Ekki tókst að hlaða upplýsingar um afhendingartíma.
Hönnun: Hjördís Þorfinnsdóttir
HEIÐA er einföld húfa sem var hönnuð með byrjendur í huga. Hægt er að velja um að prjóna húfuna í hring eða fram og til baka og sauma hana saman í lokin.
Í húfuna þarf aðeins einn lit og 40 g af einföldum Þingborgarlopa. Hún hentar því vel sem fyrsta húfuverkefnið fyrir þá sem eru að læra að prjóna.
Innifalið
- Nákvæm prjónauppskrift á íslensku og ensku
- Uppskriftin er rafræn og er send í PDF-formi með tölvupósti eftir kaup
Efni sem þarf:
- 40 g af einföldum Þingborgarlopa
- 3,5 mm og 5,5 mm prjóna
Erfiðleikastig: Byrjendur
Algengar spurningar
Hentar HEIÐA byrjendum?
Já. HEIÐA var hönnuð sem einfalt verkefni fyrir byrjendur. Hægt er að velja hvort húfan er prjónuð í hring eða fram og til baka og síðan saumuð saman. Aðeins einn litur er notaður í húfuna.
Fæ ég prentaða uppskrift senda heim?
Nei. Þetta er rafræn prjónauppskrift. Eftir kaup færðu uppskriftina senda með tölvupósti sem PDF-skjal á íslensku og ensku.
Hvað er íslenskur plötulopi?
Plötulopi er óspunninn lopi úr íslenskri ull. Hann er laus í sér og því þarf að fara varlega með hann meðan prjónað er. Ef þráðurinn slitnar er einfalt að leggja endana saman og nudda þá létt milli fingranna.
Plötulopa má prjóna einfaldan eða leggja tvo eða fleiri þræði saman, allt eftir því hversu þykkt prjónið á að vera. HEIÐA er prjónuð úr einum þræði af Þingborgarlopa.
HÉR má lesa meira um íslenska ull, þel, tog og plötulopa.
Hvað er sérstakt við Þingborgarlopann?
Þingborgarlopinn er framleiddur af Ístex úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Við þvott ullarinnar eru notuð mild hreinsiefni með það að markmiði að varðveita sem best náttúrulega eiginleika hennar.
Áherslan á val á lambsull og milda meðhöndlun hennar skilar sér í mjúkum og léttum plötulopa þar sem eiginleikar íslensku ullarinnar fá að njóta sín.
HÉR má lesa meira um Þingborgarlopann og hvernig hann er unninn.
