Safn: Allir lopalitir

Skoðaðu alla 85 liti Hörpugulls. Hver dokka er handlitaður þingborgarlopi sem unninn er úr sérvalinni lambsull og bera nöfn úr jurtaríkinu. Lopinn er einfaldur plötulopi og litaður í litlum skömmtum á Suðurlandi.

Hér finnur þú alla 85 liti Hörpugulls í handlituðum Þingborgarlopa. Plötulopinn er unninn úr sérvalinni íslenskri lambsull og handlitaður hjá okkur á Suðurlandi í litlum lotum.

Litir Hörpugulls sækja innblástur í jurtaríkið og ber hver litur nafn plöntu eða trés. Úrvalið spannar allt frá mildum og möttum tónum yfir í djúpa og skæra liti, auk lita sem handlitaðir eru á náttúrulega gráan lopa.

Þar sem lopinn er handlitaður geta litbrigði verið örlítið mismunandi milli litana og dokka. Ef þú pantar fleiri en eina dokku í sama lit veljum við saman dokkur sem passa sem best.