Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: 28. ágúst 2026

Hörpugull rekur þessa netverslun og vefsíðu, ásamt allri tengdri upplýsingagjöf, efni, virkni, verkfærum, vörum og þjónustu, í þeim tilgangi að veita þér sem viðskiptavini vandaða og þægilega verslunarupplifun (“Þjónustan”). Netverslun Hörpugulls er rekin á Shopify-vettvangnum, sem gerir okkur kleift að veita þjónustuna. Í þessari persónuverndarstefnu er lýst hvernig við söfnum, notum og miðlum persónuupplýsingum þegar þú notar þjónustuna. Ef ósamræmi kemur upp milli þjónustuskilmála okkar og þessarar stefnu, gildir þessi persónuverndarstefna um söfnun, vinnslu og miðlun persónuupplýsinga. Vinsamlegast lestu þessa stefnu vandlega. 

Með því að nota eða hafa aðgang að þjónustunni staðfestir þú að þú hafir lesið og skiljir þessa stefnu.

Persónuupplýsingar sem við söfnum eða vinnum með.

Þegar við notum hugtakið „persónuupplýsingar“ er átt við upplýsingar sem auðkenna þig eða geta með sanngjörnum hætti verið tengdar við þig. Þetta nær ekki til upplýsinga sem hafa verið gerðar nafnlausar eða afpersónugreindar þannig að ekki sé lengur hægt að rekja þær til þín. Það fer eftir því hvernig þú notar þjónustuna, hvar þú býrð og hvaða lög eiga við, en við gætum safnað eða unnið með eftirfarandi flokka upplýsinga um þig, þar á meðal:

  • Samskiptaupplýsingar eins og nafn, heimilisfang, afhendingarfang, símanúmer og netfang.
  • Reiknings- og fjárhagsupplýsingar eins og greiðslukortaupplýsingar og önnur greiðsluupplýsingar.
  • Upplýsingar um notandareikning eins og notandanafn, lykilorð og stillingar.
  • Upplýsingar um viðskipti eins og pantanir, greiðslusaga, afhendingarmáti og skilaferli.
  • Samskipti við okkur svo sem þegar þú hefur samband við þjónustuver eða sendir fyrirspurn.
  • Upplýsingar um tæki, svo sem upplýsingar um tækið þitt, vafra, nettengingu, IP-tölu og önnur auðkenni sem tengjast tækinu.
  • Upplýsingar um notkun, þar á meðal upplýsingar um hvernig, hvenær og á hvaða hátt þú notar þjónustuna eða ferðast um vefsvæðið.

Hvaðan persónuupplýsingar koma

Við kunnum að safna persónuupplýsingum frá eftirfarandi aðilum eða með eftirfarandi hætti:

  • Beint frá þér, meðal annars þegar þú stofnar aðgang, heimsækir eða notar þjónustuna, hefur samband við okkur eða veitir okkur persónuupplýsingar með öðrum hætti.
  • Sjálfkrafa í gegnum þjónustuna, meðal annars frá tækinu þínu þegar þú notar vörur okkar eða þjónustu eða heimsækir vefsíður okkar, sem og með notkun vafrakaka og sambærilegrar tækni.
  • Frá þjónustuveitendum okkar, meðal annars þegar við fáum þá til að veita tiltekna tæknilega þjónustu og þeir safna eða vinna persónuupplýsingar fyrir okkar hönd.
  • Frá samstarfsaðilum okkar eða öðrum þriðju aðilum.

Notkun persónuupplýsinga.

Við notum upplýsingar þínar eftir því hvernig þú hefur samskipti við okkur eða hvaða þjónustu þú notar:

  • Til að veita, viðhalda og bæta þjónustuna. Við notum upplýsingar til að efna samning við þig, afgreiða pantanir, sjá um greiðslur, afhendingu og mögulegar skil.
  • Til að markasetja og auglýsa. Við getum sent þér kynningarefni í tölvupósti, smáskilaboðum eða póstsendingum og sýnt þér auglýsingar á netinu, bæði á okkar síðum og öðrum vefsvæðum. Þar á meðal byggt á vörum eða þjónustu sem þú hefur sýnt áhuga
  • Til öryggis og svikavarna. Við notum persónuupplýsingar til að staðfesta aðgang, koma í veg fyrir svik, rannsaka grunsamlega starfsemi og vernda þjónustuna, viðskiptavini og aðra.
  • Til samskipta við þig. Þetta felur í sér að veita þjónustu, svara fyrirspurnum og aðstoða eftir þörfum.
  • Til lagalegra skyldna. Við vinnum með upplýsingar til að uppfylla lagaskyldur, svara löglegum beiðnum eða í tengslum við viðeigandi réttarágreining.

Hvernig við miðlum persónuupplýsingum

Við tilteknar aðstæður kunnum við að miðla persónuupplýsingum þínum til þriðju aðila í lögmætum tilgangi og í samræmi við þessa persónuverndarstefnu. Slíkar aðstæður geta meðal annars verið eftirfarandi:

  • Til Shopify, þjónustuveitenda og annarra þriðju aðila sem veita þjónustu fyrir okkar hönd, svo sem upplýsingatækniþjónustu, greiðslumiðlun, gagnagreiningu, þjónustu við viðskiptavini, skýjageymslu, afgreiðslu pantana og sendingar.
  • Til viðskipta- og markaðssamstarfsaðila sem veita markaðsþjónustu og birta þér auglýsingar. Til dæmis notum við Shopify til að styðja við sérsniðnar auglýsingar frá þjónustuveitendum þriðju aðila sem byggjast á virkni þinni á netinu hjá mismunandi söluaðilum og vefsíðum. Viðskipta- og markaðssamstarfsaðilar okkar vinna með upplýsingar þínar í samræmi við eigin persónuverndarstefnur. Það fer eftir búsetu þinni hvort þú eigir rétt á að óska eftir því að upplýsingum um þig sé ekki miðlað í þeim tilgangi að birta þér markvissar auglýsingar og markaðsefni sem byggist á virkni þinni á netinu hjá mismunandi söluaðilum og vefsíðum. Þú getur nýtt þér rétt þinn til að hafna slíkri notkun [hér].
  • Þegar þú gefur fyrirmæli um, óskar eftir eða samþykkir með öðrum hætti að við miðlum tilteknum upplýsingum til þriðju aðila, til dæmis vegna sendingar á vörum til þín eða þegar þú notar samfélagsmiðlaviðbætur eða innskráningarlausnir.
  • Til tengdra aðila okkar eða annarra aðila innan fyrirtækjasamstæðu okkar.
  • Í tengslum við viðskipti, svo sem samruna eða gjaldþrot, til að uppfylla lagalegar skyldur sem kunna að hvíla á okkur (þar á meðal til að bregðast við stefnum, húsleitarheimildum og sambærilegum beiðnum), til að framfylgja viðeigandi þjónustuskilmálum eða stefnum og til að vernda þjónustuna, réttindi okkar og réttindi notenda okkar eða annarra.

Tengsl okkar við Shopify

Þjónustan er hýst hjá Shopify, sem safnar og vinnur persónuupplýsingar um aðgang þinn að þjónustunni og notkun þína á henni í þeim tilgangi að veita þér þjónustuna og bæta hana. Upplýsingar sem þú veitir í gegnum þjónustuna verða sendar til og þeim miðlað með Shopify, sem og þriðju aðilum sem kunna að vera staðsettir í öðrum löndum en búsetulandi þínu, í þeim tilgangi að veita þér þjónustuna og bæta hana.

Auk þess notum við tiltekna viðbótareiginleika Shopify til að hjálpa okkur að vernda, efla og bæta rekstur okkar. Þessir eiginleikar nýta gögn og upplýsingar sem verða til við samskipti þín við verslun okkar, aðra söluaðila og Shopify. Til að veita þessa viðbótareiginleika kann Shopify að nota persónuupplýsingar sem safnað er um samskipti þín við verslun okkar, aðra söluaðila og Shopify.

Við þessar aðstæður ber Shopify ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga þinna, þar á meðal að svara beiðnum þínum um að nýta réttindi þín varðandi notkun persónuupplýsinga í þessum tilgangi.

Til að fá frekari upplýsingar um hvernig Shopify notar persónuupplýsingar þínar og hvaða réttindi þú kannt að eiga geturðu lesið [persónuverndarstefnu Shopify fyrir neytendur]. Það fer eftir búsetu þinni hvaða réttindi þú getur nýtt varðandi persónuupplýsingar þínar í gegnum [persónuverndargátt Shopify].

Vefsíður og tenglar þriðju aðila

Þjónustan kann að innihalda tengla á vefsíður eða aðra netvettvanga sem reknir eru af þriðju aðilum. Ef þú fylgir tenglum á vefsíður sem hvorki tengjast okkur né eru undir okkar stjórn ættir þú að kynna þér persónuverndar- og öryggisstefnur þeirra, sem og aðra skilmála og reglur.

Við ábyrgjumst hvorki persónuvernd né öryggi slíkra vefsíðna og berum ekki ábyrgð á þeim, þar á meðal á nákvæmni, heildstæði eða áreiðanleika upplýsinga sem þar er að finna.

Upplýsingar sem þú birtir á opinberum eða hálfopinberum vettvangi, þar á meðal upplýsingar sem þú deilir á samfélagsmiðlum þriðju aðila, kunna einnig að vera sýnilegar öðrum notendum þjónustunnar og/eða notendum viðkomandi vettvanga án þess að við eða þriðji aðili geti takmarkað notkun þeirra.

Það eitt að við birtum slíka tengla felur ekki í sér að við mælum með eða styðjum efni viðkomandi vettvanga, eigendur þeirra eða rekstraraðila, nema annað sé sérstaklega tekið fram í þjónustunni.

Upplýsingar um börn

Þjónustan er ekki ætluð börnum og við söfnum ekki vitandi vits persónuupplýsingum um börn sem ekki hafa náð lögræðisaldri samkvæmt lögum í því landi þar sem þau búa. Ef þú ert foreldri eða forráðamaður barns sem hefur veitt okkur persónuupplýsingar geturðu haft samband við okkur með því að nota samskiptaupplýsingarnar hér að neðan og óskað eftir því að þeim verði eytt.

Frá gildistökudegi þessarar persónuverndarstefnu höfum við enga vitneskju um að við „deilum“ eða „seljum“ persónuupplýsingar einstaklinga yngri en 16 ára, eins og þau hugtök eru skilgreind í gildandi lögum.

Öryggi og varðveisla upplýsinga þinna

Hafðu í huga að engar öryggisráðstafanir eru fullkomnar eða óyfirstíganlegar og við getum því ekki ábyrgst fullkomið öryggi. Auk þess er ekki víst að upplýsingar sem þú sendir okkur séu öruggar á meðan þær eru í flutningi. Við mælum með því að þú notir ekki óöruggar samskiptaleiðir til að senda okkur viðkvæmar upplýsingar eða trúnaðarupplýsingar.

Hversu lengi við varðveitum persónuupplýsingar þínar fer eftir ýmsum þáttum, svo sem hvort við þurfum upplýsingarnar til að viðhalda notandareikningi þínum, veita þér þjónustuna, uppfylla lagalegar skyldur, leysa úr ágreiningi eða framfylgja öðrum gildandi samningum og stefnum.

Réttindi þín og valkostir

Það fer eftir búsetu þinni hvort þú eigir einhver eða öll eftirfarandi réttindi varðandi persónuupplýsingar þínar. Þessi réttindi eru þó ekki fortakslaus, kunna aðeins að eiga við við tilteknar aðstæður og í sumum tilvikum er okkur heimilt samkvæmt lögum að hafna beiðni þinni.

  • Réttur til aðgangs og upplýsinga. Þú kannt að eiga rétt á að óska eftir aðgangi að persónuupplýsingum sem við höfum um þig.
  • Réttur til eyðingar. Þú kannt að eiga rétt á að óska eftir því að við eyðum persónuupplýsingum sem við varðveitum um þig.
  • Réttur til leiðréttingar. Þú kannt að eiga rétt á að óska eftir því að við leiðréttum rangar persónuupplýsingar sem við varðveitum um þig.
  • Réttur til gagnaflutnings. Þú kannt, við tilteknar aðstæður og með ákveðnum undantekningum, að eiga rétt á að fá afrit af persónuupplýsingum sem við höfum um þig og óska eftir því að við flytjum þær til þriðja aðila.
  • Réttur til að hafna sölu eða miðlun vegna markvissra auglýsinga. Það fer eftir búsetu þinni hvort þú eigir rétt á að hafna „sölu“ eða „miðlun“ persónuupplýsinga þinna eða vinnslu þeirra í þeim tilgangi sem telst „markviss auglýsing“ samkvæmt gildandi persónuverndarlögum. Þú getur nýtt þér rétt þinn til að hafna slíkri notkun [hér]. Athugaðu að ef þú heimsækir vefsíðu okkar með kveikt á Global Privacy Control-stillingu til að hafna slíkri vinnslu munum við, eftir því hvar þú ert staðsett/ur, sjálfkrafa líta á það sem beiðni um að hafna vinnslunni fyrir það tæki og þann vafra sem þú notar til að heimsækja vefsíðuna. Ef hægt er að tengja tækið sem sendir merkið við Shopify-reikning munum við einnig láta beiðnina gilda um þann reikning. Frekari upplýsingar um Global Privacy Control má finna á globalprivacycontrol.org. Að Global Privacy Control undanskildu viðurkennum við ekki önnur „Do Not Track“-merki sem kunna að vera send úr vafranum þínum eða tækinu.
  • Stjórnun samskiptastillinga. Við kunnum að senda þér kynningartölvupóst og þú getur hvenær sem er afþakkað slíkar sendingar með því að nota afskráningarmöguleikann sem birtist í tölvupósti frá okkur. Þótt þú afþakkir slíkar sendingar kunnum við áfram að senda þér tölvupóst sem ekki er kynningarefni, svo sem varðandi notandareikning þinn eða pantanir sem þú hefur lagt inn.

Ef þú býrð í Bretlandi eða á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) kannt þú, með fyrirvara um þær undantekningar og takmarkanir sem kveðið er á um í lögum á hverjum stað, einnig að eiga eftirfarandi réttindi:

  • Réttur til að andmæla vinnslu og krefjast takmörkunar á vinnslu. Þú kannt að eiga rétt á að óska eftir því að við hættum eða takmörkum vinnslu persónuupplýsinga í tilteknum tilgangi.
  • Afturköllun samþykkis. Þegar vinnsla persónuupplýsinga byggist á samþykki þínu átt þú rétt á að draga samþykkið til baka. Afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu sem byggðist á samþykki þínu áður en það var dregið til baka.

Þú getur nýtt þér þessi réttindi þar sem slíkur möguleiki er í boði innan þjónustunnar eða með því að hafa samband við okkur með samskiptaupplýsingunum hér að neðan. Frekari upplýsingar um hvernig Shopify notar persónuupplýsingar þínar og hvaða réttindi þú kannt að eiga, þar á meðal vegna gagna sem Shopify vinnur, má finna á privacy.shopify.com.

Við munum ekki mismuna þér vegna þess að þú nýtir þér einhver þessara réttinda. Okkur kann að vera nauðsynlegt að staðfesta auðkenni þitt áður en við getum afgreitt beiðni þína, eftir því sem gildandi lög heimila eða krefjast. Samkvæmt gildandi lögum kannt þú að geta veitt viðurkenndum umboðsmanni heimild til að leggja fram beiðni fyrir þína hönd til að nýta þessi réttindi. Áður en við samþykkjum slíka beiðni frá umboðsmanni munum við krefjast sönnunar á því að þú hafir veitt honum heimild til að koma fram fyrir þína hönd og við kunnum einnig að þurfa að staðfesta auðkenni þitt beint við þig. Við munum svara beiðni þinni innan þess tíma sem gildandi lög kveða á um.

Kvartanir

Ef þú hefur kvörtun vegna þess hvernig við vinnum með persónuupplýsingar þínar skaltu hafa samband við okkur með samskiptaupplýsingunum hér að neðan. Ef þú ert ekki ánægð/ur með svar okkar við kvörtun þinni kannt þú, eftir því hvar þú býrð, að eiga rétt á að áfrýja ákvörðun okkar með því að hafa samband við okkur með samskiptaupplýsingunum hér að neðan eða leggja fram kvörtun hjá persónuverndaryfirvaldi á þínu svæði.

Fyrir einstaklinga á EES má finna lista yfir viðeigandi persónuverndaryfirvöld [hér].

Flutningur persónuupplýsinga milli landa

Athugaðu að við kunnum að flytja, geyma og vinna persónuupplýsingar þínar utan þess lands sem þú býrð í.

Ef við flytjum persónuupplýsingar þínar út fyrir Evrópska efnahagssvæðið eða Bretland munum við styðjast við viðurkennda flutningsleið, svo sem staðlaða samningsskilmála framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins eða sambærilega samningsskilmála sem viðeigandi yfirvöld í Bretlandi hafa samþykkt, eftir því sem við á, nema upplýsingarnar séu fluttar til lands sem hefur verið viðurkennt sem land sem tryggir fullnægjandi vernd.

Breytingar á þessari persónuverndarstefnu

Við kunnum að uppfæra þessa persónuverndarstefnu öðru hvoru, meðal annars til að endurspegla breytingar á starfsháttum okkar eða af öðrum rekstrarlegum, lagalegum eða reglubundnum ástæðum. Við munum birta uppfærða persónuverndarstefnu á þessari vefsíðu, uppfæra dagsetninguna „Síðast uppfært“ og gera aðrar ráðstafanir sem gildandi lög kunna að krefjast.

Hafðu samband

Ef þú hefur einhverjar spurningar um persónuverndarvenjur okkar eða þessa persónuverndarstefnu, eða ef þú vilt nýta þér einhver þeirra réttinda sem þér standa til boða, geturðu hringt í okkur í síma +354 861 1901, sent okkur tölvupóst á horpugull@gmail.com eða haft samband við okkur að Hörpugull, Engjavegi 67, 800 Selfoss, Íslandi.

Í skilningi gildandi persónuverndarlaga erum við ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga þinna.