Hoppa yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Hörpugull

Mosi

Mosi

Venjulegt verð 3,000 ISK
Venjulegt verð Söluverð 3,000 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Magn

Efni: 100% íslensk lambsull
Metrar og þyngd: 170 m / 50 g
Prjónastærð: 3–5 mm

Hver dokka inniheldur einfaldan plötulopa (Þingborgarlopa) úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Lopinn er handlitaður á hvítum grunni með ediksýrulitum sem gefa bjarta og tæra liti.

Þar sem lopinn er handlitaður í litlum lotum geta litbrigði verið mismunandi milli litana og einstakra dokka.

Þessi litur minnir á mosa (Bryophyta). Mosi vex villtur um allt Ísland og klæðir hraun, grjót og jarðveg mjúkum grænum teppum. Hann vex afar hægt og er viðkvæmur fyrir álagi, en gegnir mikilvægu hlutverki í vistkerfum landsins með því að halda raka og skapa búsvæði fyrir smáar lífverur.


Þvottaleiðbeiningar
Leggið flíkina í volgt vatn (30°C) með mildri sápu og látið liggja í um fimm mínútur. Takið flíkina varlega upp úr vatninu og leggið í hreint skolvatn. Kreistið vatnið varlega úr án þess að vinda flíkina. Leggið hana á handklæði til þerris, mótið og sléttið úr.

 

Algengar spurningar

Fæ ég nákvæmlega sama lit og er á myndinni?
Ekki endilega. Lopinn er handlitaður í litlum lotum og því geta litbrigði verið mismunandi milli litana og jafnvel milli dokka úr sömu litun. Ef fleiri en ein dokka eru keypt í sama lit veljum við saman þær dokkur sem eru líkastar hver annarri.

Hvað er íslenskur plötulopi?
Plötulopi er óspunninn lopi og því viðkvæmari í meðförum en spunnið garn. Þegar búið er að prjóna lopann njóta náttúrulegir eiginleikar íslensku ullarinnar sín og úr verður létt, hlý og sterk flík.

Hægt er að prjóna úr plötulopa einföldum eða leggja tvo eða fleiri þræði saman, allt eftir því hversu þykkt prjónið á að vera. Einnig má prjóna hann með öðru bandi, til dæmis einbandi.

HÉR má lesa meira um íslenska ull, þel, tog og plötulopa.

Hvað er sérstakt við Þingborgarlopann?
Þingborgarlopinn er unninn af Ístex úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Við þvott ullarinnar eru notuð mild hreinsiefni með það að markmiði að varðveita sem best náttúrulega eiginleika ullarinnar. Úr verður mjúkur og léttur plötulopi þar sem eiginleikar íslensku lambsullarinnar fá að njóta sín.


HÉR má lesa meira um Þingborgarlopann og hvernig hann er unninn.

Sjá nánari upplýsingar