Hörpugull
Prjónapakkning | SALKA VALKA peysa
Prjónapakkning | SALKA VALKA peysa
Ekki tókst að hlaða upplýsingar um afhendingartíma.
Hönnun: Maja Siska fyrir Hörpugull
SALKA VALKA er prjónuð ofan frá og niður úr einföldum Þingborgarlopa. Peysan er með mynstri á berustykki og rúmgóðu hálsmáli og hægt er að velja um að prjóna hana með eða án hettu.
Einfaldur plötulopinn gerir peysuna létta og hlýja. Í mynstrið eru notaðir þrír handlitaðir litir frá Hörpugulli og hægt er að velja um hvítan eða ljósgráan sauðalit sem aðallit.
Innifalið:
- 300 g af sauðalituðum Þingborgarlopa í aðallit
- 60 g af handlituðum Þingborgarlopa í þremur litum fyrir mynstrið
- Nákvæm prjónauppskrift á íslensku og ensku
Pakkinn inniheldur nægilegt magn af aðallit fyrir stærstu stærðina (XXL), óháð því hvaða stærð er prjónuð.
|
Stærð: |
S |
M |
L |
XL |
XXL |
|
Brjóstmál: |
89 cm |
96 cm |
102 cm |
109 cm |
116 cm |
|
Aðallitur (magn): |
210 g |
240 g |
270 g |
270 g |
300 g |
Auk aðallitar eru notuð 60 g af handlituðum plötulopa í þremur litum fyrir mynstrið.
Erfiðleikastig: Miðlungs
Hentar prjónafólki sem kann helstu grunnatriði í prjóni, hefur einhverja reynslu af því að prjóna í hring og vill takast á við litaprjón.
Þvottaleiðbeiningar
Leggðu flíkina í volgt vatn (30°C) með mildri ullarsápu og láttu hana liggja í um fimm mínútur. Kreistu vatnið varlega úr án þess að vinda flíkina og skolaðu í hreinu vatni við sama hitastig. Kreistu vatnið aftur varlega úr, leggðu flíkina flata á handklæði, mótaðu hana og láttu þorna
Algengar spurningar
Hentar SALKA VALKA byrjendum?
SALKA VALKA hentar best prjónafólki sem kann helstu grunnatriði, hefur einhverja reynslu af því að prjóna í hring og er tilbúið að takast á við litaprjón. Uppskriftin er flokkuð sem miðlungserfið.
Hvað fylgir prjónapakkanum?
Í pakkanum er allt garn sem þarf fyrir SALKA VALKA í þeirri stærð sem valin er, ásamt 60 g af handlituðum plötulopa í þremur litum fyrir mynstrið. Nákvæm prjónauppskrift á íslensku og ensku fylgir einnig.
Hvað er íslenskur plötulopi?
Plötulopi er óspunninn lopi úr íslenskri ull. Hann er laus í sér og því þarf að fara varlega með hann meðan prjónað er. Ef þráðurinn slitnar er einfalt að leggja endana saman og nudda þá létt milli fingranna.
Plötulopa má prjóna einfaldan eða leggja tvo eða fleiri þræði saman, allt eftir því hversu þykkt prjónið á að vera. SALKA VALKA er prjónuð úr einum þræði og verður því létt þrátt fyrir að vera hlý.
HÉR má lesa meira um íslenska ull, þel, tog og plötulopa.
Hvað er sérstakt við Þingborgarlopann?
Þingborgarlopinn er framleiddur af Ístex úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Við þvott ullarinnar eru notuð mild hreinsiefni með það að markmiði að varðveita sem best náttúrulega eiginleika hennar.
Áherslan á val á lambsull og milda meðhöndlun hennar skilar sér í mjúkum og léttum plötulopa þar sem eiginleikar íslensku ullarinnar fá að njóta sín.
HÉR má lesa meira um Þingborgarlopann og hvernig hann er unninn.
