Hoppa yfir í vöruupplýsingar
1 af 4

Hörpugull

Uppskrift | BERGUR -göngupeysa

Uppskrift | BERGUR -göngupeysa

Venjulegt verð 1,000 ISK
Venjulegt verð Söluverð 1,000 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Magn

Hönnun: Harpa Ólafsdóttir / Hörpugull

BERGUR er létt göngupeysa úr einföldum Þingborgarlopa. Hún var hönnuð með það í huga að nýta hlýju og léttleika plötulopans og skapa peysu sem auðvelt er að grípa með sér í gönguferðir og aðra útivist.

Peysan er prjónuð neðan frá og upp úr einum þræði af plötulopa. Stóru prjónarnir gera hana tiltölulega fljótprjónaða og úr verður létt og lipur peysa sem hentar vel í íslenska útivist.

Innifalið

  • Nákvæm prjónauppskrift á íslensku og ensku
  • Uppskriftin er rafræn og er send í PDF-formi með tölvupósti eftir kaup

Efni sem þarf

  • Einfaldur plötulopi – 200 g fyrir stærð A / 250 g fyrir stærð B
  • 4,5 og 6 mm prjónar

Stærðir: A (minni) | B (stærri)
Yfirvídd: A: 84 cm | B: 90 cm

Erfiðleikastig: Miðlungs
Hentar prjónafólki sem kann helstu grunnatriði í prjóni, hefur einhverja reynslu af því að prjóna í hring og vill takast á við sína fyrstu lopapeysu.

 

Algengar spurningar

Hentar BERGUR byrjendum?
BERGUR hentar best prjónafólki sem kann helstu grunnatriði og hefur einhverja reynslu af því að prjóna í hring. Uppskriftin er flokkuð sem miðlungserfið og getur hentað sem fyrsta lopapeysan fyrir þann sem er tilbúinn að takast á við stærra verkefni.

Fæ ég prentaða uppskrift senda heim?
Nei. Þetta er rafræn prjónauppskrift. Eftir kaup færðu uppskriftina senda með tölvupósti sem PDF-skjal á íslensku og ensku.

Hvað er íslenskur plötulopi?
Plötulopi er óspunninn lopi úr íslenskri ull. Hann er laus í sér og því þarf að fara varlega með hann meðan prjónað er. Ef þráðurinn slitnar er einfalt að leggja endana saman og nudda þá létt milli fingranna.

Plötulopa má prjóna einfaldan eða leggja tvo eða fleiri þræði saman, allt eftir því hversu þykkt prjónið á að vera. BERGUR er prjónuð úr einum þræði og nýtir þannig sérstaklega léttleika plötulopans.

HÉR má lesa meira um íslenska ull, þel, tog og plötulopa.

Hvað er sérstakt við Þingborgarlopann?
Þingborgarlopinn er framleiddur af Ístex úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Við þvott ullarinnar eru notuð mild hreinsiefni með það að markmiði að varðveita sem best náttúrulega eiginleika hennar.

Áherslan á val á lambsull og milda meðhöndlun hennar skilar sér í mjúkum og léttum plötulopa þar sem eiginleikar íslensku ullarinnar fá að njóta sín.

HÉR má lesa meira um Þingborgarlopann og hvernig hann er unninn.

Sjá nánari upplýsingar