Hoppa yfir í vöruupplýsingar
1 af 4

Hörpugull

Þingborgarlopi – Náttúrulegur, ólitaður

Þingborgarlopi – Náttúrulegur, ólitaður

Venjulegt verð 1,500 ISK
Venjulegt verð Söluverð 1,500 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Litur: Grátt
Magn

Efni: 100% íslensk lambsull
Metrar og þyngd: um 340 m / 100 g í hverri plötu
Prjónastærð: 3–5 mm

Hver plata inniheldur einfaldan Þingborgarlopa úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull.

Þingborgarlopinn fæst í náttúrulegum sauðalitum og er því algjörlega ólitaður – liturinn kemur beint af kindinni. Ullin er þvegin með mildum hreinsiefnum með það að markmiði að varðveita sem best náttúrulega eiginleika hennar.

Lopann má prjóna einfaldan eða leggja tvo eða fleiri þræði saman, allt eftir því hversu þykkt prjónið á að vera. Einnig má prjóna hann með öðru bandi, til dæmis einbandi.

HÉR má lesa meira um Þingborgarlopann og hvernig hann er unninn.

 

Þvottaleiðbeiningar
Leggðu flíkina í volgt vatn (30°C) með mildri ullarsápu og láttu hana liggja í um fimm mínútur. Kreistu vatnið varlega úr án þess að vinda flíkina og skolaðu í hreinu vatni við sama hitastig. Kreistu vatnið aftur varlega úr, leggðu flíkina flata á handklæði, mótaðu hana og láttu þorna.

 

Algengar spurningar

Hvað er plötulopi?
Plötulopi er óspunninn lopi úr íslenskri ull. Hann er laus í sér og því þarf að fara varlega með hann meðan prjónað er. Ef þráðurinn slitnar er þó einfalt að leggja endana saman og nudda þá létt milli fingranna.

Íslenska ullin samanstendur af tveimur ólíkum gerðum hára: mjúku og einangrandi þeli og lengra, sterkara togi. Þessir eiginleikar gera plötulopann léttan og hlýjan og hafa lengi gert hann að vinsælu efni í íslenskar lopapeysur og annan hlýjan prjónaskap.

HÉR má lesa meira um íslenska ull, þel, tog og plötulopa.

Hvað er sérstakt við Þingborgarlopann?
Þingborgarlopinn er framleiddur af Ístex úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Við þvott ullarinnar eru notuð mild hreinsiefni með það að markmiði að varðveita sem best náttúrulega eiginleika hennar. Áherslan á val á lambsull og milda meðhöndlun hennar skilar sér í mjúkum og léttum plötulopa þar sem eiginleikar íslensku ullarinnar fá að njóta sín.

Náttúrulegu sauðalitirnir eru ólitaðir og koma því beint úr íslensku ullinni.

Sjá nánari upplýsingar