Hoppa yfir í vöruupplýsingar
1 af 8

Hörpugull

Prjónpakkning | BERGUR -göngupeysa

Prjónpakkning | BERGUR -göngupeysa

Venjulegt verð 12,000 ISK
Venjulegt verð Söluverð 12,000 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Litur
Stærð
Magn

Hönnun: Harpa Ólafsdóttir / Hörpugull

BERGUR er létt göngupeysa úr einföldum, handlituðum Þingborgarlopa. Hún var hönnuð með það í huga að nýta léttleika og hlýju plötulopans og skapa peysu sem auðvelt er að grípa með sér í gönguferðir og aðra útivist.

Peysan er prjónuð neðan frá og upp. Einfaldur plötulopinn gerir hana létta og lipra og stóru prjónarnir gera hana jafnframt tiltölulega fljótprjónaða.


Innifalið:

  • Handlitaður Þingborgarlopi fyrir eina peysu, 200 eða 250 g eftir stærð
  • Nákvæm prjónauppskrift á íslensku og ensku

Stærðir: A (minni) | B (stærri)
Yfirvídd: A: 84 cm | B: 90 cm
Prjónastærð: 4,5 og 6 mm

Erfiðleikastig: Miðlungs
Hentar prjónafólki sem kann grunnatriði í prjóni og vill takast á við sína fyrstu lopapeysu.

 

Létt peysa fyrir íslenska útivist

BERGUR varð til út frá hugmyndinni um einfalda lopapeysu sem væri hlý án þess að vera þung. Einfaldur Þingborgarlopi hentar sérstaklega vel í slíka flík – peysan tekur lítið pláss, er létt að bera með sér og gefur góða hlýju þegar á þarf að halda.


Algengar spurningar

Hentar BERGUR byrjendum?
BERGUR hentar best prjónafólki sem kann helstu grunnatriði og hefur einhverja reynslu af því að prjóna í hring. Uppskriftin er flokkuð sem miðlungserfið og getur hentað sem fyrsta lopapeysan fyrir þann sem er tilbúinn að takast á við stærra verkefni.

Hvað er íslenskur plötulopi?
Plötulopi er óspunninn lopi og því viðkvæmari í meðförum en spunnið garn. Þegar búið er að prjóna lopann njóta náttúrulegir eiginleikar íslensku ullarinnar sín og úr verður létt og hlý flík.

Hægt er að prjóna úr plötulopa einföldum eða leggja tvo eða fleiri þræði saman, allt eftir því hversu þykkt prjónið á að vera. BERGUR er prjónuð úr einum þræði og nýtir því sérstaklega léttleika plötulopans.

HÉR má lesa meira um íslenska ull, þel, tog og plötulopa.

Hvað er sérstakt við Þingborgarlopann?
Þingborgarlopinn er unninn af Ístex úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Við þvott ullarinnar eru notuð mild hreinsiefni með það að markmiði að varðveita sem best náttúrulega eiginleika hennar.

Úr verður léttur plötulopi þar sem eiginleikar íslensku lambsullarinnar fá að njóta sín.

HÉR má lesa meira um Þingborgarlopann og hvernig hann er unninn.

Sjá nánari upplýsingar