Hörpugull
Vatnsberi
Vatnsberi
Ekki tókst að hlaða upplýsingar um afhendingartíma.
Efni: 100% íslensk lambsull
Metrar og þyngd: 170m/50g í dokku
Prjónastærð: 3 - 5 mm.
Hver dokka inniheldur einfaldan plötulopa (þingborgarlopa) sem er unninn úr sérvalinni fyrsta flokks lambsull. Til að ná fram björtum og skínandi litum er hvítur lopi handlitaður með ediksýrulitun sem að gerir hverja dokku einstaka og ólíka annarri - allt eftir því hversu fylltur liturinn er.
Þessi litur minnir á blómlit Vatnsbera (Aquilegia vulgaris), fallegs fjölærings sem þekktur er fyrir háa stöngla og sérkennileg, hangandi blóm. Vatnsberi sáir sér auðveldlega og getur breiðst víða út í görðum, en blómin eru engu að síður einstaklega falleg og heillandi.
-
Þvottaleiðbeiningar: Leggðu flíkina í volgt vatn (30°C) með mildri sápu. Látið hana liggja í vatninu í fimm mínútur. Takið hana svo upp úr, vindið varlega og leggið í hreint skolvatn. Kreistið skolvatnið úr og leggið á handklæði til þerris. Mótið flíkina til og sléttið úr.
-
Algengar spurningar:
Fæ ég nákvæmlega sama lit og er á myndinni?
Nei, það er ekki öruggt þar sem um er að ræða lopa sem handlitaður er í litlum lotum. Litirnir geta komið ólíkt fram eftir því hversu fylltir þeir eru og jafnvel verið ólíkir milli dokka í sömu litun en ef keypt er fleiri en ein dokka þá veljum við saman dokkur sem eru líkastar hver annarri.
Hvað er íslenskur lopi -plötulopi?
Plötulopi er óspunninn ullarþráður sem gerir hann viðkvæman í vinnslu en vegna sérstakra eiginleika íslensku ullarinnar þá er hann ótrúlega sterkur í flík, hlýr og náttúrulega vatnsheldur. Hægt er að vinna úr plötulopa með því að nota hann einfaldan eða vinda hann tvö- og þrefalt allt eftir því hversu þykk flíkin á að vera. Einnig er hægt að vinda plötulopa saman við annað band, t.d. einband sem styrkir lopann.
Hvað er sérstakt við þingborgarlopann?
Þingborgarlopinn er unninn af Ístex úr sérvalinni fyrsta flokks lambsull og við þvott ullarinnar eru notuð mild hreinsiefni svo að nátttúruleg fita og aðrir mikilvægir eiginleikar í ullinni haldist í lopanum. Þetta nákvæma vinnuferli og að í hann er aðeins notuð besta lambsullinn gerir hann mýkri og náttúrulegri.
Share
