Hoppa yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Dóruband

Þingborgartvíband -Dóruband

Þingborgartvíband -Dóruband

Venjulegt verð 900 ISK
Venjulegt verð Söluverð 900 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Litir
Magn

Framleitt af Dórubandi

Efni: 100% íslensk lambsull
Metrar og þyngd: 110 m / 50 g

Þingborgartvíband er spunnið úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Ullin er þvegin með mildum hreinsiefnum með það að markmiði að varðveita sem best náttúrulega eiginleika hennar.

Bandið fæst í náttúrulegum sauðalitum og er því algjörlega ólitað – liturinn kemur beint af kindinni.

Þingborgartvíband má prjóna eitt og sér eða leggja það saman með plötulopa eða öðru bandi. Það hentar meðal annars vel í vettlinga, húfur og annan prjónaskap þar sem óskað er eftir hlýju og sterku ullarbandi.

 

Þvottaleiðbeiningar
Leggðu flíkina í volgt vatn (30°C) með mildri ullarsápu og láttu hana liggja í um fimm mínútur. Kreistu vatnið varlega úr án þess að vinda flíkina og skolaðu í hreinu vatni við sama hitastig. Kreistu vatnið aftur varlega úr, leggðu flíkina flata á handklæði, mótaðu hana og láttu þorna.

 

Algengar spurningar

Hvað er sérstakt við Þingborgarbandið?
Þingborgarband og Þingborgarlopi eru unnin af Ístex fyrir Dóruband úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull.

Við þvott ullarinnar eru notuð mild hreinsiefni með það að markmiði að varðveita sem best náttúrulega eiginleika hennar. Áherslan á val á lambsull og milda meðhöndlun hennar skilar sér í mjúku og hlýju ullarbandi þar sem eiginleikar íslensku ullarinnar fá að njóta sín.

Náttúrulegu sauðalitirnir eru ólitaðir og koma því beint úr íslensku ullinni.

HÉR má lesa meira um Þingborgarlopann og -bandið og hvernig það er unnið.

Sjá nánari upplýsingar