Hoppa yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Dóruband

Þingborgareinband -Dóruband

Þingborgareinband -Dóruband

Venjulegt verð 850 ISK
Venjulegt verð Söluverð 850 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Litir
Magn

Framleitt af Dórubandi

Efni: 100% íslensk lambsull
Metrar og þyngd: 110 m / 50 g
Prjónafesta: 18-20 lykkjur á 3-4 mm prjóna

Þingborgareinband er spunnið úr einum þræði úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Ullin er þvegin með mildum hreinsiefnum með það að markmiði að varðveita sem best náttúrulega eiginleika hennar.

Einbandið má prjóna eitt og sér eða leggja það saman með plötulopa eða öðru bandi. Með því að prjóna það með plötulopa fæst sterkari þráður án þess að tapa léttleikanum sem einkennir lopann.


Þvottaleiðbeiningar
Leggið flíkina í volgt vatn (30°C) með mildri sápu og látið liggja í um fimm mínútur. Takið flíkina varlega upp úr vatninu og leggið í hreint skolvatn. Kreistið vatnið varlega úr án þess að vinda flíkina. Leggið hana á handklæði til þerris, mótið og sléttið úr.


Algengar spurningar

Hvað er sérstakt við Þingborgarbandið?
Þingborgarband og Þingborgarlopi eru unnin af Ístex fyrir Dóruband úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Við þvott ullarinnar eru notuð mild hreinsiefni með það að markmiði að varðveita sem best náttúrulega eiginleika hennar.

Sauðalitaða bandið er ólitað og litirnir því náttúrulegir ullarlitir, beint af kindinni.

HÉR má lesa meira um Þingborgarlopann og -bandið og hvernig það er unnið.



Sjá nánari upplýsingar