Hörpugull
Strútalilja
Strútalilja
Ekki tókst að hlaða upplýsingar um afhendingartíma.
Efni: 100% íslensk lambsull
Metrar og þyngd: 170 m / 50 g
Prjónastærð: 3–5 mm
Hver dokka inniheldur einfaldan plötulopa (Þingborgarlopa) úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Lopinn er handlitaður á hvítum grunni með ediksýrulitum sem gefa bjarta og tæra liti.
Þar sem lopinn er handlitaður í litlum lotum geta litbrigði verið mismunandi milli litana og einstakra dokka.
Þessi litur minnir á blóm strútalilju (Crocosmia × crocosmiiflora). Strútalilja er glæsileg laukplanta sem blómstrar löngum bogadregnum blómstilkum með skærappelsínugulum til rauðum blómum yfir sumarið. Hlýir litir hennar og tignarlegt vaxtarlag gera hana að sannkölluðu augnayndi í garðinum. Hún þrífst best á sólríkum stað í vel framræstum jarðvegi.
Þvottaleiðbeiningar
Leggið flíkina í volgt vatn (30°C) með mildri sápu og látið liggja í um fimm mínútur. Takið flíkina varlega upp úr vatninu og leggið í hreint skolvatn. Kreistið vatnið varlega úr án þess að vinda flíkina. Leggið hana á handklæði til þerris, mótið og sléttið úr.
Algengar spurningar
Fæ ég nákvæmlega sama lit og er á myndinni?
Ekki endilega. Lopinn er handlitaður í litlum lotum og því geta litbrigði verið mismunandi milli litana og jafnvel milli dokka úr sömu litun. Ef fleiri en ein dokka eru keypt í sama lit veljum við saman þær dokkur sem eru líkastar hver annarri.
Hvað er íslenskur plötulopi?
Plötulopi er óspunninn lopi og því viðkvæmari í meðförum en spunnið garn. Þegar búið er að prjóna lopann njóta náttúrulegir eiginleikar íslensku ullarinnar sín og úr verður létt, hlý og sterk flík.
Hægt er að prjóna úr plötulopa einföldum eða leggja tvo eða fleiri þræði saman, allt eftir því hversu þykkt prjónið á að vera. Einnig má prjóna hann með öðru bandi, til dæmis einbandi.
HÉR má lesa meira um íslenska ull, þel, tog og plötulopa.
Hvað er sérstakt við Þingborgarlopann?
Þingborgarlopinn er unninn af Ístex úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Við þvott ullarinnar eru notuð mild hreinsiefni með það að markmiði að varðveita sem best náttúrulega eiginleika ullarinnar. Úr verður mjúkur og léttur plötulopi þar sem eiginleikar íslensku lambsullarinnar fá að njóta sín.
HÉR má lesa meira um Þingborgarlopann og hvernig hann er unninn.
