Hoppa yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Hörpugull

Eldlilja

Eldlilja

Venjulegt verð 3.000 ISK
Venjulegt verð Söluverð 3.000 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Magn

DjúpirEfni: 100% íslensk ull
Metrar og þyngd: 170m/50g í dokku
Prjónastærð: 3 - 5 mm.

Hver dokka inniheldur einfaldan Þingborgarlopa sem er unninn úr sérvalinni fyrsta flokks lambsull. Til að ná fram björtum og skínandi litum er hvítur lopi handlitaður með ediksýrulitun sem að gerir hverja dokku einstaka og ólíka annarri - allt eftir því hversu fylltur liturinn er. 

Nafnið var valið því liturinn minnir á blómlit eldlilju (Lilium bulbiferum) sem er gömul garðplanta sem kallar á athygli með stórum og áberandi appelsínugulum blómum. Hún vex upp af lauki og getur því verið erfið að færa til í garðinum.

-
Þvottaleiðbeiningar:
Leggðu flíkina í volgt vatn (30°C) með mildri sápu. Látið hana liggja í vatninu í fimm mínútur. Takið hana svo upp úr, vindið varlega og leggið í hreint skolvatn. Kreistið skolvatnið úr og leggið á handklæði til þerris. Mótið flíkina til og sléttið úr.

Sjá nánari upplýsingar