Hoppa yfir í vöruupplýsingar
1 af 7

Hörpugull

Prjónapakkning | Vestfirskir Vettlingar

Prjónapakkning | Vestfirskir Vettlingar

Venjulegt verð 3,500 ISK
Venjulegt verð Söluverð 3,500 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Litir
Magn

Hönnun: Harpa Ólafsdóttir / Hörpugull

Íslenskir vettlingar hafa í gegnum tíðina verið prjónaðir í fjölbreyttum mynstrum og gömul vestfirsk prjónamynstur urðu kveikjan að þessari hönnun Hörpu.

Harpa hefur prjónað Vestfirsku vettlingana sína í yfir þrjátíu ár við miklar vinsældir, til að mynda hafa allmörg vettlingapör verið pöntuð til að gefa erlendum þjóðhöfðingjum sem sækja landið heim. Okkur þykir sérstaklega vænt um að þessi litla hönnun, sem á rætur í íslenskri prjónahefð, hafi fengið að ferðast með þessum hætti út fyrir landsteinana.

Þétt prjónið og íslenska ullarbandið gera vettlingana hlýja, en mynstrið gefur þeim það svipmót sem einkennir Vestfirsku vettlingana.

Hægt er að velja um náttúrulega sauðaliti eða handlitað Þingborgartvíband frá Hörpugulli.

Innifalið:

  • Efni fyrir stærð M (dömu): 93 g af Dórubandi (Þingborgartvíband) úr íslenskri lambsull í þremur litum (sauðalitað eða handlitað af Hörpugulli)
  • Nákvæm prjónauppskrift á íslensku og ensku

Erfiðleikastig: Miðlungs
Hentar prjónafólki sem kann grunnatriði í prjóni og vill takast á við litaprjón og mynstur á fínum prjónum.

 

Innblásnir af gömlum vestfirskum mynstrum

Íslenskir vettlingar hafa í gegnum tíðina verið prjónaðir í fjölbreyttum mynstrum og gömul vestfirsk prjónamynstur urðu kveikjan að þessari hönnun Hörpu.

Þétt prjónið og íslenska ullin gera vettlingana hlýja, en mynstrið gefur þeim það svipmót sem einkennir Vestfirsku vettlingana.

 

Algengar spurningar

Hentar pakkinn byrjendum?
Pakkinn hentar best prjónafólki sem kann helstu grunnatriði í prjóni og hefur einhverja reynslu af litaprjóni. Vettlingarnir eru prjónaðir á 2,5 og 3 mm prjóna og því gott að vera vön eða vanur því að vinna með fína sokkaprjóna.

Hvað er Þingborgartvíband?
Þingborgartvíband er spunnið úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull og unnið af Ístex fyrir Dóruband. Líkt og með Þingborgarlopann er lögð áhersla á milda meðhöndlun ullarinnar við vinnsluna svo náttúrulegir eiginleikar hennar fái að njóta sín.

Sauðalitaða bandið er ólitað og litirnir því náttúrulegir ullarlitir, beint af kindinni.

HÉR má lesa meira um Þingborgarlopann og hvernig hann er unninn.

Eru litirnir nákvæmlega eins og myndirnar sýna?
Sauðalitaða bandið ætti að vera mjög líkt því sem sést á myndunum, þó náttúruleg ull geti alltaf haft örlítil litbrigði.

Handlitaða bandið er litað í litlum lotum og því geta litbrigði verið mismunandi milli litana og einstakra dokka. Það er hluti af eðli handlitaðs bands.


Langar þig að skoða fleiri liti?
Skoðaðu úrvalið af handlituðum íslenskum lopa frá Hörpugull, grátt og hvítt Dóruband eða fleiri prjónapakkningar.

Sjá nánari upplýsingar