Hörpugull
Prjónapakkning | GULLHÚFA -Óvissuprón
Prjónapakkning | GULLHÚFA -Óvissuprón
Ekki tókst að hlaða upplýsingar um afhendingartíma.
Hönnun: Maja Siska fyrir Hörpugull
GULLhúfan var hönnuð fyrir Hörpugull með handlitaða plötulopann okkar í aðalhlutverki. Húfan er óvissuprjón þar sem pakkinn inniheldur blöndu af litum og ekki er vitað nákvæmlega fyrirfram hvernig húfan kemur til með að líta út.
Húfan er prjónuð úr tveimur þráðum af plötulopa í einu. Þegar litirnir breytast blandast þeir saman á ólíkan hátt eftir því hvaða tveir þræðir mætast hverju sinni. Engar tvær GULLhúfur verða því alveg eins.
Innifalið:
- 65 g af handlituðum Þingborgarlopa úr sérvalinni íslenskri lambsull – blanda af litum
- Nákvæm prjónauppskrift á íslensku og ensku
Erfiðleikastig: Auðvelt til miðlungs
Hentar prjónafólki sem kann grunnatriði í prjóni og langar að prófa óvissuprjón og leika sér með liti.
Algengar spurningar
Hvaða liti fæ ég í pakkanum?
Hver GULLhúfupakki inniheldur sína blöndu af handlituðum litum og pakkarnir eru því ekki allir eins. Hluti af óvissuprjóninu er að sjá litina blandast saman eftir því sem líður á verkið.
Verður húfan mín eins og húfurnar á myndunum?
Nei, ekki nákvæmlega. Myndirnar sýna dæmi um GULLhúfur og litablöndur, en hver pakkning er ólík og því verður hver húfa með sitt eigið litaflæði.
Hvað er íslenskur plötulopi?
Plötulopi er óspunninn lopi úr íslenskri ull. Hann er laus í sér og því þarf að fara varlega með hann meðan prjónað er. Ef þráðurinn slitnar er einfalt að leggja endana saman og nudda þá létt milli fingranna.
GULLhúfan er prjónuð úr tveimur þráðum af plötulopa í einu. Það gerir prjónið þykkara en þegar lopinn er notaður einfaldur og gefur um leið möguleika á að blanda saman ólíkum litum í sömu húfu.
HÉR má lesa meira um íslenska ull, þel, tog og plötulopa.
