Hoppa yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Hörpugull

Burkni (grátt)

Burkni (grátt)

Venjulegt verð 3.000 ISK
Venjulegt verð Söluverð 3.000 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Magn

Efni: 100% íslensk ull
Metrar og þyngd: 170m/50g í dokku
Prjónastærð: 3 - 5 mm.

Hver dokka inniheldur einfaldan Þingborgarlopa sem er unninn úr sérvalinni fyrsta flokks lambsull. Til að ná fram björtum og skínandi litum er lopi handlitaður með ediksýrulitun sem að gerir hverja dokku einstaka og ólíka annarri - allt eftir því hversu fylltur liturinn er. 

Nafnið var valið því liturinn minnir á blaðlit burkna (Dryopteris filix-mas) sem er vinsæl plöntutegund í íslenskum görðum og hefur verið til frá tímum risaeðlanna. Fallega mótuð blöðin fanga athygli margra en þessar tegundir mynda ekki blóm heldur fjölga sér með gróum. 

Þessi litur er litaður á gráan grunn (sauðalit), sem þýðir að náttúrulegur litur ullarinnar skín í gegn og gefur bandinu meiri dýpt og lifandi áferð. Þetta gerir hverja dokku einstaka og undirstrikar náttúrulegan uppruna íslensku ullarinnar.

-
Þvottaleiðbeiningar:
Leggðu flíkina í volgt vatn (30°C) með mildri sápu. Látið hana liggja í vatninu í fimm mínútur. Takið hana svo upp úr, vindið varlega og leggið í hreint skolvatn. Kreistið skolvatnið úr og leggið á handklæði til þerris. Mótið flíkina til og sléttið úr.

Sjá nánari upplýsingar