Hoppa yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Hörpugull

Bóndarós

Bóndarós

Venjulegt verð 3.000 ISK
Venjulegt verð Söluverð 3.000 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Magn

Efni: 100% íslensk lambsull
Metrar og þyngd: 170m/50g í dokku
Prjónastærð: 3 - 5 mm.

Hver dokka inniheldur einfaldan plötulopa (þingborgarlopa) sem er unninn úr sérvalinni fyrsta flokks lambsull. Til að ná fram björtum og skínandi litum er hvítur lopi handlitaður með ediksýrulitun sem að gerir hverja dokku einstaka og ólíka annarri - allt eftir því hversu fylltur liturinn er.

Þessi litur minnir á blómlit Bóndarósar (Paeonia officinalis) sem er áberandi fjölæringur sem blómstrar stórum blómum en þarf oft uppbindingu.

-
Þvottaleiðbeiningar:
Leggðu flíkina í volgt vatn (30°C) með mildri sápu. Látið hana liggja í vatninu í fimm mínútur. Takið hana svo upp úr, vindið varlega og leggið í hreint skolvatn. Kreistið skolvatnið úr og leggið á handklæði til þerris. Mótið flíkina til og sléttið úr.

-

Algengar spurningar:

Fæ ég nákvæmlega sama lit og er á myndinni?

Nei, það er ekki öruggt þar sem um er að ræða lopa sem handlitaður er í litlum lotum. Litirnir geta komið ólíkt fram eftir því hversu fylltir þeir eru og jafnvel verið ólíkir milli dokka í sömu litun en ef keypt er fleiri en ein dokka þá veljum við saman dokkur sem eru líkastar hver annarri. 

Hvað er íslenskur lopi -plötulopi?

Plötulopi er óspunninn ullarþráður sem gerir hann viðkvæman í vinnslu en vegna sérstakra eiginleika íslensku ullarinnar þá er hann ótrúlega sterkur í flík, hlýr og náttúrulega vatnsheldur. Hægt er að vinna úr plötulopa með því að nota hann einfaldan eða vinda hann tvö- og þrefalt allt eftir því hversu þykk flíkin á að vera. Einnig er hægt að vinda plötulopa saman við annað band, t.d. einband sem styrkir lopann.

Hvað er sérstakt við þingborgarlopann?

Þingborgarlopinn er unninn af Ístex úr sérvalinni fyrsta flokks lambsull og við þvott ullarinnar eru notuð mild hreinsiefni svo að nátttúruleg fita og aðrir mikilvægir eiginleikar í ullinni haldist í lopanum. Þetta nákvæma vinnuferli og að í hann er aðeins notuð besta lambsullinn gerir hann mýkri og náttúrulegri.

Sjá nánari upplýsingar