Hoppa yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Hörpugull

Bjarghnoðri (grátt)

Bjarghnoðri (grátt)

Venjulegt verð 3,000 ISK
Venjulegt verð Söluverð 3,000 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Magn

Efni: 100% íslensk lambsull
Metrar og þyngd: 170 m / 50 g
Prjónastærð: 3–5 mm

Hver dokka inniheldur einfaldan plötulopa (Þingborgarlopa) úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Lopinn er handlitaður á náttúrulega gráum grunni með ediksýrulitum. Grái grunnurinn hefur áhrif á endanlegan lit og gefur honum meiri dýpt og annan blæ en þegar litað er á hvítan lopa.

Þar sem bæði náttúrulegi grunnlitur ullarinnar og handlitunin geta verið breytileg geta litbrigði verið mismunandi milli litana og einstakra dokka.

Þessi litur minnir á bjarghnoðra (Sedum ochroleucum). Bjarghnoðri er lágvaxinn hnoðri með þykk og safarík blöð og gul blóm sem birtast yfir sumarið.


Þvottaleiðbeiningar
Leggið flíkina í volgt vatn (30°C) með mildri sápu og látið liggja í um fimm mínútur. Takið flíkina varlega upp úr vatninu og leggið í hreint skolvatn. Kreistið vatnið varlega úr án þess að vinda flíkina. Leggið hana á handklæði til þerris, mótið og sléttið úr.

 

Algengar spurningar

Fæ ég nákvæmlega sama lit og er á myndinni?
Ekki endilega. Lopinn er handlitaður í litlum lotum og því geta litbrigði verið mismunandi milli litana og jafnvel milli dokka úr sömu litun. Ef fleiri en ein dokka eru keypt í sama lit veljum við saman þær dokkur sem eru líkastar hver annarri.

Hvað er íslenskur plötulopi?
Plötulopi er óspunninn lopi og því viðkvæmari í meðförum en spunnið garn. Þegar búið er að prjóna lopann njóta náttúrulegir eiginleikar íslensku ullarinnar sín og úr verður létt, hlý og sterk flík.

Hægt er að prjóna úr plötulopa einföldum eða leggja tvo eða fleiri þræði saman, allt eftir því hversu þykkt prjónið á að vera. Einnig má prjóna hann með öðru bandi, til dæmis einbandi.

HÉR má lesa meira um íslenska ull, þel, tog og plötulopa.

Hvað er sérstakt við Þingborgarlopann?
Þingborgarlopinn er unninn af Ístex úr sérvalinni, fyrsta flokks íslenskri lambsull. Við þvott ullarinnar eru notuð mild hreinsiefni með það að markmiði að varðveita sem best náttúrulega eiginleika ullarinnar. Úr verður mjúkur og léttur plötulopi þar sem eiginleikar íslensku lambsullarinnar fá að njóta sín.

HÉR má lesa meira um Þingborgarlopann og hvernig hann er unninn.

Sjá nánari upplýsingar