Hörpugull
FORSALA | ÁR EFTIR ÁR -minningalaupur
FORSALA | ÁR EFTIR ÁR -minningalaupur
Ekki tókst að hlaða upplýsingar um afhendingartíma.
ATHUGIÐ – FORSALA!
Bókin er væntanleg úr prentun í desember 2026. Pantanir verða afgreiddar þegar bókin kemur úr prentun.
Hvað gerðist í dag?
Fyrir einu ári, tveimur eða tíu?
Minningar eru ljós sem lýsa upp hversdaginn, en í amstri hans vilja þær oft gleymast.
Ár eftir ár – Minningalaupur er bók þar sem þú getur safnað saman augnablikum úr lífi þínu, rétt eins og hrafninn safnar dýrgripum í hreiðrið sitt.
Hver dagsetning á sína eigin síðu, án ártals. Þar getur þú varðveitt minningar frá deginum í dag eða rifjað upp atvik frá liðnum árum. Smám saman fyllast síðurnar af augnablikum sem saman segja þína sögu.
Þar má varðveita:
- Gullkorn og skemmtileg samtöl
- Litla sigra og stóra áfanga
- Ferðalög og hversdagsævintýri
- Ljósmyndir, miða og úrklippur
... eða hvað sem þú vilt varðveita í minningalaupnum þínum.
Gefðu sköpunarkraftinum lausan tauminn og njóttu þess að safna minningum sem þú getur yljað þér við um ókomin ár.
Ný og endurbætt útgáfa
Ár eftir ár – Minningalaupur kemur nú aftur í uppfærðri útgáfu.
Bókin heldur sömu stærð og áður (17 × 24 cm), en er nú með 384 síður úr þykkari pappír, saumaðri bindingu og mjúkum, sveigjanlegum kili sem eykur endingu og gerir þægilegra að fletta og skrifa í bókina.
