Prjónagleði 2026 – Sköpun, samfélag og handverk
Í byrjun júní fyllist Blönduós af litríkum hnyklum, skapandi hugmyndum og prjónurum úr öllum áttum þegar Prjónagleðin verður haldin í tíunda sinn.
Fyrir mörg okkar sem elskum ull, handverk og rólega stund með prjónana í höndunum er þessi helgi orðin einn af hápunktum ársins.
Í ár verður hátíðin haldin dagana 4.–7. júní og líkt og áður verður dagskráin bæði fjölbreytt og spennandi. Prjónagleðin snýst nefnilega ekki bara um garn og uppskriftir, heldur líka um fólk, sögur, innblástur og samveru.
Við hjá Hörpugulli verðum með bás á Garntorginu og erum ótrúlega spennt fyrir að hitta bæði gamla sem og nýja ullarunnendur.
Hátíð fyrir prjónaunnendur
Það sem gerir Prjónagleðina svona sérstaka er andrúmsloftið sem myndast þegar fólk með sameiginlegt áhugamál kemur saman.
Á Blönduósi skapast einstök stemning þar sem fólk hittist yfir prjónunum, skoðar nýjar hugmyndir, lærir nýjar aðferðir og deilir reynslu sinni.
Í dagskránni má meðal annars finna:
- fjölbreytt námskeið
- fyrirlestra
- opið hús hjá handverksfólki
- sýningar
- gönguferðir
- prjónahittinga í heimahúsum
- og auðvitað hið vinsæla Garntorg
- fyrirlestra
Það er eitthvað sérstakt við að sjá heilt samfélag taka þátt í hátíð sem þessari — þar sem handverk, sköpun og gleði fá að njóta sín.

Nýja Salka Valka kittið verður í básnum okkar á Prjónagleðinni.
Námskeið, fyrirlestrar og skapandi innblástur
Dagskráin í ár er einstaklega glæsileg og spannar allt frá hefðbundnum prjónaaðferðum yfir í nýstárlegar textíl- og viðgerðaraðferðir.
Gestir geta meðal annars sótt námskeið í tvöföldu prjóni, sashiko-viðgerðum, spunaaðferðum, hekli, útsaumi og hönnun. Þá verða einnig áhugaverðir fyrirlestrar um til dæmis myndatöku á handverki, skapandi útsaum og mikilvægi handverks fyrir andlega líðan og streitulosun.
Við elskum sérstaklega hvað dagskráin nær vel utan um bæði hefðir og nýsköpun. Eitthvað sem okkur finnst passa svo vel við íslenska ullarmenningu.
Stephen West kemur til Íslands
Einn af hápunktum hátíðarinnar í ár verður heimsókn Stephen West frá Westknits, sem er þekktur af prjónurum um allan heim fyrir litríka hönnun sína og einstaka nálgun á litaval og form.
West heldur bæði námskeið og fyrirlestur á hátíðinni þar sem hann mun segja frá hönnunarferlinu sínu, ást sinni á Íslandi og hvernig hann vinnur með liti í sjölum, peysum og sokkum.
Það verður án efa sérstök upplifun fyrir marga að hitta hann á Prjónagleðinni í íslensku ullarumhverfi norðursins.
Þema ársins - endurnýting og nýtt líf
Í ár er sérstök áhersla lögð á að endurnýta gamlar prjónaflíkur og gefa þeim nýtt líf. Þemað snýst um liti, leik og skapandi notkun mismunandi garns og áferðar.
Okkur hjá Hörpugulli finnst þetta falleg áminning um hversu verðmætt handverk getur verið. Prjónaðar flíkur bera oft með sér minningar, tíma og umhyggju. Stundum þarf aðeins smá hugmyndaflug til að gefa þeim áframhaldandi líf.
Hittumst á Garntorginu
Við hjá Hörpugulli verðum með bás á Garntorginu alla helgina þar sem við munum taka með okkur handlitaðan íslenskan Þingborgarlopa, uppáhaldsliti og ýmislegt fallegt fyrir prjónaverkefni sumarsins.
Ef þú verður á ferðinni á Blönduósi vonum við innilega að þú komir við hjá okkur, skoðir litina og spjallir aðeins við okkur yfir ullinni.
Við hlökkum mikið til að upplifa stemninguna, hitta annað prjónafólk og vera hluti af þessari einstöku hátíð sem fagnar íslensku handverki, sköpun og prjónagleði.
Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á Prjónagleði