{"product_id":"stjornubladka-i-gratt","title":"Stjörnublaðka (grátt)","description":"\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003eEfni: \u003cb\u003e100% íslensk lambsull\u003c\/b\u003e \u003cbr\u003eMetrar og þyngd: \u003cb\u003e170m\/50g í dokku\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003ePrjónastærð:\u003cb\u003e 3 - 5 mm.\u003c\/b\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003eHver dokka inniheldur einfaldan plötulopa (þingborgarlopa) sem er unninn úr sérvalinni fyrsta flokks lambsull. Til að ná fram björtum og skínandi litum er lopinn handlitaður með ediksýrulitun sem að gerir hverja dokku einstaka og ólíka annarri - allt eftir því hversu fylltur liturinn er.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003eHér er grár lopi litaður, sem þýðir að náttúrulegur litur ullarinnar skín í gegn og gefur bandinu meiri dýpt og lifandi áferð. Þetta gerir hverja dokku einstaka og undirstrikar náttúrulegan uppruna íslensku ullarinnar.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cblockquote\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003ci\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003eÞessi litur minnir á blómlit \u003cb\u003eStjörnublöðku \u003c\/b\u003e(Lewisia cotyledon) sem er látlaus steinhæðaplanta sem blómstrar einstaklega fallega snemma sumars. \u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/blockquote\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003e-\u003cbr\u003eÞvottaleiðbeiningar: \u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003eLeggðu flíkina í volgt vatn (30°C) með mildri sápu. Látið hana liggja í vatninu í fimm mínútur. Takið hana svo upp úr, vindið varlega og leggið í hreint skolvatn. Kreistið skolvatnið úr og leggið á handklæði til þerris. Mótið flíkina til og sléttið úr.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003e-\u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003eAlgengar spurningar:\u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003ci\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003eFæ ég nákvæmlega sama lit og er á myndinni?\u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/b\u003e\u003ci\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003ci\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003eNei, það er ekki öruggt þar sem um er að ræða lopa sem handlitaður er í litlum lotum. Litirnir geta komið ólíkt fram eftir því hversu fylltir þeir eru og jafnvel verið ólíkir milli dokka í sömu litun en ef keypt er fleiri en ein dokka þá veljum við saman dokkur sem eru líkastar hver annarri. \u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003ci\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003eHvað er íslenskur lopi -plötulopi?\u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/b\u003e\u003ci\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003ci\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003ePlötulopi er óspunninn ullarþráður sem gerir hann viðkvæman í vinnslu en vegna sérstakra eiginleika íslensku ullarinnar þá er hann ótrúlega sterkur í flík, hlýr og náttúrulega vatnsheldur. Hægt er að vinna úr plötulopa með því að nota hann einfaldan eða vinda hann tvö- og þrefalt allt eftir því hversu þykk flíkin á að vera. Einnig er hægt að vinda plötulopa saman við annað band, t.d. einband sem styrkir lopann. \u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003ci\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003eHvað er sérstakt við þingborgarlopann?\u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/b\u003e\u003ci\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003ci\u003e\u003cspan style=\"font-family: 'Calibri',sans-serif;\"\u003eÞingborgarlopinn er unninn af Ístex úr sérvalinni fyrsta flokks lambsull og við þvott ullarinnar eru notuð mild hreinsiefni svo að nátttúruleg fita og aðrir mikilvægir eiginleikar í ullinni haldist í lopanum. Þetta nákvæma vinnuferli og að í hann er aðeins notuð besta lambsullinn gerir hann mýkri og náttúrulegri. \u003c\/span\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Hörpugull","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51901342712113,"sku":"33","price":3000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0929\/0435\/8193\/files\/stjornubladka_grey_base_hand_dyed_icelandic_lopi_yarn_pink_tones.jpg?v=1773838816","url":"https:\/\/horpugull.is\/products\/stjornubladka-i-gratt","provider":"Hörpugull","version":"1.0","type":"link"}